Um okkur
Tré lífsins- bálstofa og Minningagarðar ses. er sjálfseignastofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni og hyggst reisa bálstofu með athafnasal og kyrrðarrými í Rjúpnadal í Garðabæ. Fyrsti Minningagarður landsins verður opnaður á sama stað þar sem fólki býðst að gróðursetja ösku ástvina sinna ásamt tré.
Tré lífsins er óháð öllum trúar- og lífsskoðunarfélögum og mun vera opið öllum óháð trú þeirra, trúleysi eða lífsskoðun.
Að baki Tré lífsins stendur Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, forsvarskona og stofnandi, ásamt fjölda sérfræðinga á ólíkum sviðum sem ná til verkefnisins, svo sem lögfræði, tækni, persónuvernd, skógrækt og sorgarúrvinnslu.
Sigríður Bylgja er með meistaragráðu í mannvistfræði með áherslu á menningu, völd og sjálfbærni. Hún hefur starfað mikið í umhverfismálum og sjálfbærni er henni sérstaklega hugleikin.
Tré Lífsins er frumkvöðlaverkefni sem hefur verið í þróun frá árinu 2015 og er stýrt af stjórn sem kosin er til tveggja ára í senn.
Stjórnarfulltrúar
Efri röð frá vinstri:Arnar Sveinn Geirsson, varaformaður Krafts, Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst og Sigurður Páll Hauksson, ráðgjafi og fyrrum forstjóri Deloitte.
Neðri röð frá vinstri: Silja Úlfarsdóttir, almannatengill, í stjórn Ljónshjarta og fyrum formaður samtakanna, Gunnar Hersveinn, rithöfundur og Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, stofnandi Trés lífsins.